07.03.2007 23:26:56 / gestur
Það er á hreinu að þessa blessaða síðu
heimsækja bara
cyber-matrix-robotar í leit að stað til að
spamma.
Með það í huga vil ég við þá segja:
Ég þakka athyglina en set hér með punktinn yfir
i-ið.
Ég vona innilega að þið hafið vel notið.
Hér hvíldi GEstur
Megi hann hvíla vel annars staðar í
netheimum.
»
01.03.2007 16:41:07 / gestur
»
30.11.2006 21:23:13 / gestur
Man hreinlega ekki hvort ég var búinn að pósta þessu ljóði hérna í
den.
Allavega, rakst á það, fíla það, hér er það!
Ég er hér til að mótmæla sjálfum mér
Ég gæti sagt þér hvernig mér
liði
ef sálin væri ekki öll á
iði
uppfull af tilgangslausu
kliði
Ég fylgdi öllum
reglunum
þrúgandi þrýstingnum
æpandi
auglýsingaskiltunum
"Þú verður að vinna þína
vinnu
þræla fyrir ölmusu
sá fyrir tómri
uppskeru"
En hann dregur mig
niður
þessi ævaforni siður
milli okkar er enginn
friður
Því frjáls vill ég
anda
þrátt fyrir mína
vankanta
flögra milli óþekktra
landa
Þá mun ég þess freista
að kveikja vonarneista
trú á manninn treysta
Kynnast öllu öðru
frelsa sál úr snöru
jafnvel skrifa litla
sögu
Um allar mínar
hugsanir
þrálátu langanir
eigingjörnu kvartanir
Æj, burt með þessa
neikvæðni
hvernig væri að iðka
jákvæðni
sýna algera
hreinskilni
Eins langt og augað
sér
þá gæti ég sigrast á sjálfum
mér
svo ég hafi eitthvað að gefa
þér
»
29.11.2006 22:51:28 / gestur
Ef ekki væri fyrir tómar bjórflöskur á skrifborðinu, þvott á
grindinni og uppvask inn í eldhúsi; þá væri ég í fullum rétti,
sitjandi fyrir framan tölvuna að skrifa um nákvæmlega ekkert
merkilegt! Merkilegt! Ég er því vitandi vits að misbjóða sjálfum
mér. Hressandi!
Ég (en ekki hver!) tel það mér til tekna að vera fær um að láta
sjálfum mér leiðast, svona for no reason. Plenty to do, eins
jankinn myndi segja.
Það er alveg á hreinu að vinna hefur smitandi áhrif á sálarlífið.
Ég meina, við (ég!) eyðum að jafnaði 40% vikunnar í vinnunni. Í
mínu tilviki eru það um 50 klukkutímar af því að stara út í loftið,
þykjast vera busy, “endurhlaða” hinar ýmsu vefsíður og hanga í
smók! Aðeins 6 klukkutímar af vinnuvikunni get ég samviskusamlega
kallað vinnu ...
Já, það er dásamlegt líf í Gourmet Bar Nóatúns Smáralindar, eintóm
hamingja.
Þó verð ég að nefna að ég hef eignað mér borð á tilteknu kaffihúsi
í skaufalindinni, Energia. Þar sit ég, sötra kaffi og finn
hugmyndir að innihaldsríkum pistlum að skrifa, svona eins og
þessum...
Þetta var lygi, mér datt þessi pistill í hug barasta rétt í þessu.
Hinsvegar skrifaði ég ljóð í dag, svona rétt á milli sopanna...
kaffisopanna þ.e.
Það er eitthvað svo “inspirational” að skrifa ljóð við kónginn...
(skaufalind... þú fatta?) Ljóðið heitir “An ode to the warrior
king- A Coalition Member seeks freedom” og er ekki að neinu leyti
vísun í skaufalindarkónginn, ekki heldur Dabba kóng, meira svona
til vinar hans frá Texas... Reyndar haga þeir sér báðir eins og það
sé uppi á þeim typpið en jæja, nóg af 9. bekkjar líffræði...
Hér kemur það:
"
for so many words
sprung out of wisdom
you cheekily elaborate
the power of freedom
for all of us to see
we should be glad to feel free
from shackles of innocence
world without terrorists
how glad you must be
training our eyes to see
darkness in paradise
evil in children´s eyes
yes, so many words
viciously demonstrate
your faith is catastrophe
your ignorance plain to see
but still we sit and swallow it
quietly obey and follow it
for reasons unknown to my curious mind
we play ourselves slaves (and I´m being kind)
we´re slaves of corrupt democracy
hence I´m dreaming of anarchy
at least in my mind
so I can finally find
a way from this slavery
"
»
06.10.2006 20:58:11 / gestur
Leave Calmer
munu spila á Airwaves hátíðinni sem verður haldin 18-22 október
næstkomandi....
- Föstudagskvöldið 20 á Kaffi Hljómalind
(22:00)
- Laugardagskvöldið 21 í Iðnó
(01:00=
Endilega skoðið hjá þeim síðuna og tékkið á músíkinni.
Ef þið eruð að fíla það sem þið heyrið verið í bandi, ég á nokkra
promo-diska með þeim sem ég mun glaðlega deila með þér!
Vonast til að sjá sem flesta á Airwaves
»
25.09.2006 16:46:03 / gestur
»
13.09.2006 00:10:08 / gestur
For the sake of sadness, let me tell you
You should bare your chest
For someone might just hit
For the sake of happiness, let me warn you
You should lock those doors
For someone will enter
For the sake of trust, let me advise you
You should look no further
For someone might fail
For the sake of your life, let me remind you
You should listen to yourself
For someone will lie
For the sake of other people´s feelings, I beg you
You should never write a poem
For someone will read
»
04.08.2006 23:21:39 / gestur
Af öryggisástæðum; vinsamlegast
lokaðu augunum meðan lestur fer fram…
Það er að sönnu tilkomumikil sjón, skýjum ofar, í 3.000 fetum á
hraðbraut skýjahnoðranna. Taugaveiklun og lotning ásamt dass af
hugsunum um tilvist skaparans, verður að magnþrungnum
tilfinningakokkteil með skrautröri við minnsta hristing
skýjafáksins. Með hliðsjón af eðli mannsins til að vantreysta hvor
öðrum er frelsandi upplifun að deila með 142 manneskjum trausti á
tvær mannverur, ófullkomna fákskapteina; útlenda þar að auki; Svía
enn fremur, trausti fyrir lífi sínu og limum, aðstæðum og
draumórum. Hversu vesæl eða tilkomumikil veröld okkar svosum er.
Skýjum ofar víkur öll stéttaskipting, við tekur endurtekin röð og
regla flugfreyjunnar, sem með mjúku brosi biður mig vinsamlegast um
að spenna sætisólar því það sé el turbulence. Sem hún hagar betur
til fagurgræna eiginkompaní hálsklútnum, vottar fyrir örlítilli
hneykslun. Litlir strákar verða ætíð og ávallt prakkarar; slá og
skæla. Ég deili með henni hneykslunarsvipnum. Tvímælalaust!
Þó ég sé barnlaus og alinn upp sem einbirni hef ég skoðun. Skoðun á
hegðun, þú skilur. Hversu gífurlega fögur sjónin er skýjum ofar,
þegar skýjahnoðrarnir mynda endalausan akur, kláran til uppskeru;
Bóndans prýði; Guðs prýði.
Hvað ef Bóndans prýði væri mín síðasta sjón, mitt síðasta
augnakonfekt. Skýjum ofar er auðvelt að kryfja lífið, andspænis
einungis möguleikanum á því að deyja, verður sálin hrein.
»
08.07.2006 00:37:45 / gestur
From some surreal confessions
Into an abyss of excuses
I´ll survive
I´ll survive
I talk in your direction
I beg in your direction
In my mind
In my mind
You whisper to me softly
You dry tears from my eyes
In my dreams
In my dreams
I ask you to stay
I ask you to love me
On this paper
On this paper
We will always stay together
We will survive this depression
All things go
All things go
I will surely find you
I will surely catch you
All things go
All things go
You will surely hide
You will surely go to mexico
But all things go
Yes all things go
Vinsamlegast segið mér eitthvað... just something
»
18.06.2006 14:06:28 / gestur
Total revelation:
Alkemistinn eftir
Coelho er vítamínsprauta fyrir andann.
Ef þið hafið ekki lesið bókina mæli ég eindregið með því að þið
gerið svo...
Reyndar mæli ég ekki með því að skila henni of seint tilbaka á
bókasafnið.
Það hefur áhrif á budduna skal ég segja ykkur.
Fleiri meðmæli:
Spartan
Fidelity, hljómsveit stofnuð úr rústum Remy Zero (því miður
þekktust fyrir superman-lagið svokallaða.) Þið getið heyrt
"by this river" hljóma á
myspace síðunni minni, Nenni ekki að gera hlekk á þetta... you know
the drill!
The
Knife, sænsk ofur-elektró-sándscape hljómsveit... Ég
emja af gleði yfir "we share our
mother´s health". (url: myspace.com/theknife)
Al Pacino, "inch by inch" ræðan úr Any Given
Sunday... Virkar vel á morgnana með faðirvorinu, kemur grúvinu í
gírinn!
Síðustu meðmælin:
Kommentkerfið
á þessari bloggsíðu, sem hefur legið í dvala,
rotnandi í helli á Satúrnus... vinsamlegast bætið úr því!
-
GEstur
»
06.06.2006 13:19:58 / gestur
Sjálfumglaður
Stoltur
Sorgmæddur
Impeccable
Immensible
Improving
Góður
Grúví
Gefandi
Unbelievable
Unsong
Unselfish
Ráðandi
Röflandi
Ríðandi
Gastly
Generous
Generator
Eggjandi
Emjandi
Eðall
Singing
Smart
Surrounded
Taktlaus
Titrandi
Takthaus
eUphemous
Unwarrented
Unrevealing
Rammskakkur
Ráfandi
Rugludallur
»
08.05.2006 21:54:56 / gestur
Í tilefni þess að hnýsni þegna þessa lands fer svo ört vaxandi
fannst mér við hæfi að skrifa smá skýrslu um mig og mína behag...
þið skilja
Ég hef hingað til ekkert verið svo svakalega hrifinn af day-by-day
bloggum (nema þá hjá Guggu Lásasmið að sjálfsögðu!) en...
Já, þið lásuð það rétt: bara EN og punktar. Þegar skrifa skal
daglega skýrslu um sjálfan sig er nefnilega nauðsynlegt að hafa
þetta einfalt-keep it simple&snappy! Hér með munu allar
útskýringar og vangaveltur heyra sögunni til, þ.e. fram að næsta
upphrópunarmerki...
Svo,
Ég:
- er hættur í hótelbransanum
- var ráðinn af Byko-Norvik-Group-HF þann 26.4.2006
- mun hér með ganga undir nafninu Gestir&Group
- er vaktstjóri í einni söluhæstu búð Nóatúns
- er að verða sérfróður um “grænmetisáfyllingar, rýrnun og
mjólkurpantanir”
- veit ýmis iðnaðarleyndarmál verslunarbransans
- á mér ekkert líf
- fór í ljós fyrir helgi
- ætla að endurinnrétta eldhúsið mitt í sumar
Vona að þessi lesning hafi verið hressandi svaladrykkur fyrir
sálina!
»
07.05.2006 01:23:46 / gestur
Það flaug í hausinn beiðnin: Kennið mér að lifa!
Hvort þetta er spurning veit ég ekki...
Það ætti kannski best við að yfirsjálfið væri spurt?
Það stendur á svari.
Útskýrið fyrir mér ef þið getið...
Get up to my level!
»
29.04.2006 13:10:18 / gestur
Þetta skrifaði ég í dag.
Vinsamlegast lesið ljóðið með:
- Letilegri
- Jafnt sem létt-dramatískri
- En þó aðallega
kaldhæðinni rödd...
Þá
hljómar það eins í hausnum á ykkur
og það gerði hjá mér...
og mun það heita...
Delicate
so from a bottomless
hole
I rise from my
sleep
defying all
odds
swallow that
web
so delicately
spun
by a man in an
SUV
that ignores all the stop
signs
feeds on you and
me
like a steak of
lamb
delicately
cooked
by a man in a
sportscar
look at him
go
ignoring all the red
lights
serving me
chicken
with bird flu
so then rally the
family
sing me those
songs
while you lower me
delicately
into a bottomless
hole
but please
please
eat the cake
____________________
ok.. hingað til hef ég verið soldið fastur i svona
ryþmaljóðagerð
er aðeins ad experimenta með annan stíl...
Þessi blessaða tjáning varð til á nokkrum mínútum
þegar inn á hótelið gekk nokkuð vel klikkaður norðurlandabúi...
þ.e. frá svíþjóð
hann var mér innblástur
Takk fyrir
»
04.04.2006 11:22:21 / gestur
Í tilefni af því að hafa séð “V for Vendetta”
" Þetta konsept “að vera með grímu” er svolítið
heillandi að mínu mati. Allir setja upp grímur við mismunandi
tækifæri, þ.e. við aðlögum okkur að aðstæðum. Einfalt og algengt
dæmi um grímu er td. þegar við huggum fólk í sorg, þ.e. aðlögum
okkur að aðstæðum annarra og virðum tilfinningar þeirra. Kannski má
frekar líkja þessu við hlutverkaleik. Við skiptum um grímu eftir
því hvaða hlutverk við erum að leika.
Þetta hljómar kannski
kaldranlega, “að setja upp grímu”… Að sjálfsögðu er meiningin ekki
sú að vera í feluleik eða leyna sínu rétta einkenni. Frekar er átt
við sveigjanleika í karakter og aðlögunarhæfni. Maður hefur nú
rekist á einstrengingslegt fólk sem breytir ekki fasi þó lífið
liggi við. Þar er kannski um að ræða einhverskonar heft á
tilfinningaflæði. Það er því jákvæður eiginleiki og í raun
hæfileiki að vera góður grímuleikari…
Persónulega er ég kamelljón í
eðli mínu. Ég haga beinlínis seglum eftir vindi. Ég lít þannig á að
fólk hafi mismunandi tengipunkta í samskiptum við annað fólk, það
þarf því að hitta á rétta punkta til að samskiptin séu sem
farsælust. Það þarf þá ákveðið innsæi og næmni til að geta séð
undir yfirborðið svo að segja. Þetta reyni ég að gera af fremsta
megni.
Gallinn á gjöf Njarðar er sá að
þetta getur leitt til að maður virki óeinlægur eða ópersónulegur,
jafnvel fjarlægur. Maður getur týnt sér í grímufjöldanum. Einnig er
mikil hætta á að glata sínu eðli eða svíkja það. Ætli það sé ekki
einkenni siðblindu, þá er sett í þann karakter sem hentar,
miskunnarlaust og án eftirsjá. Öll rök og sannindi hverfa þegar
manneskjan missir tengsl við sjálfið og umhverfi sitt.
En þá spyr ég mig: Hvað er
sjálfið? Er einhver ein gríman sem ég nota “hin rétta ég”? Er
sjálfið bara vel hristur kokkteill af grímum/hlutverkum?? Hvar
liggja mörkin milli heiðarleika og óheiðarleika gagnvart minni
eigin persónu? Er ég siðbl…???
Er heimspeki mín rétta hilla?
Nei, ég held ekki…
Gestur asks: “Mr. Sartre, I would
love to pick your brain…?” "
Viðeigandi að bæta þessum pælingum við…
" Ég hugsa Shakespeare : “Að vera eða ekki
vera, það er spurningin!” Ég stend á miðju sviðinu, það skín á
hauskúpuna er ég lyfti henni upp til móts við bjartan ljóskastara
leikhússins. Lotningarfull aðdáun áhorfenda leynir sér ei þegar
ljóðrænn textinn drýpur mjúklega frá vörum mínum út yfir mannhafið
sem hefur safnast til að upplifa töfra leiklistarinnar.
Dreymir ekki alla um að verða leikari? Mér
finnst það öfundsverður eiginleiki að geta snert við fólki og
spilað á strengi sálar þeirra. Tilhugsunin um að hverfa inn í
ævintýri og deila reynslunni með öðrum er draumi líkust. Sá
hæfileiki leikarans að tjá tilfinningu og spegla sálina öðrum til
sýnis er markmið. Það er markmiðið mitt. Til að virkja slíkan
hæfileika þarf sjálfsþekkingu, sjálfsmat, hógværð, frelsi og
fórnfýsi. Ég hef rödd innra með mér sem les þennan texta, skreytir
hann silkimjúkum blæbrigðum og gæðir hann lífi. Markmiðið er að
skila því til annarra, leyfa öðrum aðgang og innsýn í eigin sál og
eðli. Það er tjáning!
Að hugsa er að vera. Hugsun er fyrsta
framfaraskrefið á beinni braut til opins hugar og sálar.
"
»
Síður:
1 2 3 ...
7